Fotbolti.net
20.01.12 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Fabian Delph til Leeds á láni (Staðfest)

Fabian Delph til Leeds á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur fengið miðjumanninn Fabian Delph á láni frá Aston Villa en samningurinn gildir þar til 25. febrúar.
Delph er uppalinn hjá Leeds en hann skoraði sex mörk í 56 leikjum með aðalliði félagsins áður en hann fór til Aston Villa árið 2009.

Þessi tvítugi leikmaður hefur leikið 36 leiki með Aston Villa síðan þá en hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu að undanförnu.

,,Þetta er frábær samningur fyirr báða aðila. Fab fær að spila og við höfum verið að leita að leikmanni í hans gæðaflokki,\" sagði Simon Grayson stjóri Leeds.

Delph fer beint inn í leikmannahóp Leeds fyrir leikinn gegn Ipswich í Championship deildinni á morgun.

Heimild: Heimasíða Leeds

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.