Brest 2 - 0 Marseille
1-0 Ludovic Ajorque ('10)
2-0 Ludovic Ajorque ('29)
2-0 Mason Greenwood, misnotað víti ('82)
1-0 Ludovic Ajorque ('10)
2-0 Ludovic Ajorque ('29)
2-0 Mason Greenwood, misnotað víti ('82)
Habib Beye stýrði Marseille í fyrsta sinn í kvöld eftir brottför Roberto De Zerbi og lentu lærlingar hans tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik.
Framherjinn Ludovic Ajorque skoraði tvennu, bæði með skalla eftir fyrirgjafir, og verðskulduðu heimamenn að leiða í leikhléinu.
Marseille var sterkara liðið í síðari hálfleik en tókst ekki að koma boltanum í netið. Brest gaf ekki mikið af færum á sér en besta færið kom á 82. mínútu þegar Mason Greenwood steig á vítapunktinn, en lét verja frá sér.
Lokatölur urðu því 2-0 fyrir Brest, sem er um miðja deild með 30 stig eftir 23 umferðir. Marseille er 10 stigum fyrir ofan, í fjórða og síðasta meistaradeildarsætinu - sex stigum fyrir ofan Hákon Arnar Haraldsson og félaga í Lille sem eru að ganga í gegnum afar erfiðan kafla.
19.02.2026 07:30
Fyrrum leikmaður Newcastle tekinn við Marseille (Staðfest)
Athugasemdir



