20.05.10 - 11:29
Magnús Már Einarsson
Laurent Blanc tekur við Frökkum eftir HM (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Laurent Blanc mun hætta sem þjálfari Bordeaux í sumar og taka við franska landsliðinu en franska knattspyrnusambandið staðfesti þetta í morgun.
Blanc, sem er 44 ára, mun taka við landsliðinu af Raymond Domenech eftir HM í sumar.
Blanc var á sínum tíma í liði Frakka sem vann HM 1998 og EM 2000 en þá lék hann í vörn liðsins.
Sem þjálfari hefur Blanc náði góðum árangri með Bordeaux en í fyrra vann liðið bæði deild og bikar undir hans stjórn.

Heimild: BBC