Fotbolti.net
20.05.10 - 14:10
Magnús Már Einarsson

Dietmar Hamann til MK Dons (Staðfest)

Dietmar Hamann til MK Dons (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

MK Dons, sem leikur í þriðju efstu deild á Englandi, hefur samið við þýska miðjumanninn Dietmar Hamann.
Þessi 36 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir eins árs samning við MK Dons en hann mun vera spilandi þjálfari hjá félaginu.

Hamann lék á árum áður með FC Bayern, Newcastle Liverpool og Manchester City en hann fór frá síðarnefnda félaginu fyrir ári síðan.

Á nýliðnu tímabili var Hamann án félags en hann hefur núna ákveðið að taka slaginn með MK Dons.

Hjá MK Dons hittir hann fyrir knattspyrnustjórann Karl Robinson en þeir þekkjast frá því hjá Liverpool á sínum tíma.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.