Haukar unnu sinn fyrsta sigur í Lengjudeild kvenna í kvöld er liðið spilaði við Fylki í sínum þriðja leik í sumar.
Það voru Fylkisstúlkur sem komust yfir í leik kvöldsins er Vienna Behnke skoraði af vítapunktinum á fimmtu mínútu.
Keri Michelle Birkenhead var leikmaður fyrri hálfleiks og skoraði hún tvö mörk með stuttu millibili til að snúa leiknum Haukum í vil sem leiddu í hálfleik.
Þórey Björk Eyþórsdóttir bætti svo við þriðja marki heimaliðsins í seinni hálfleik og lokastaðan, 3-1.
Augnablik er komið á blað í deildinni eftir leik við botnlið Fjölnis. Augnablik vann góðan 2-1 útisigur og var að næla í sín fyrstu stig.
Lið HK situr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir leik við annað taplaust lið í kvöld í Tindastól.
Eitt mark var skorað í leiknum og það gerði Isabella Eva Aradóttir þegar 34 mínútur voru búnar af fyrri hálfleik.
Haukar 3 - 1 Fylkir
0-1 Vienna Behnke ('5 , víti)
1-1 Keri Michelle Birkenhead ('38 )
2-1 Keri Michelle Birkenhead ('45 )
3-1 Þórey Björk Eyþórsdóttir ('62 )
Fjölnir 1 - 2 Augnablik
1-0 Sara Montoro('20)
1-1 Júlía Katrín Baldvinsdóttir('71)
1-2 Díana Ásta Guðmundsdóttir('72)
Tindastóll 0 - 1 HK
0-1 Isabella Eva Aradóttir('34)
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |