Jói Kalli sagður taka við ÍA - Formaðurinn tjáir sig

Jói Kalli aftur á Skagann?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eggert Herbertsson.

Mynd: ÍA

Jói Kalli aftur á Skagann?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Guðjónsson er mjög sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá ÍA og Fótbolti.net fengið ábendingar um að það verði raunin.
Hann er í dag þjálfari danska félagsins AB en óstaðfestar fréttir eru á þá leið að hægt sé að fá hann lausan þaðan fyrir tiltölulega lága upphæð og slúðrað er um að fjölskyldan sé að flytja aftur á Akranes.
Fótbolti.net náði ekki tali á Jóa Kalla við vinnslu þessarar fréttar.

TENGT EFNI
Jói Kalli langlíklegastur til að taka við ÍA
Formaður knattspyrnufélags ÍA, Eggert Ingólfur Herbertsson, var spurður út í Jóa Kalla og hvort ÍA hefði sett sig í samband við danska félagið.
„Það er ekkert formlegt farið af stað, við erum bara að kanna möguleikana," segir Eggert sem segist ekki hafa heyrt af því að Jói Kalli sé að flytja aftur á Akranes.
Jói Kalli er uppalinn hjá ÍA og var þjálfari liðsins áður en hann var ráðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins snemma árs 2022.
Vorið 2024 var hann svo ráðinn þjálfari AB í dönsku C-deildinni.
Jón Þór Hauksson var látinn fara sem þjálfari ÍA í gær eftir slæmt gengi.
ÍA er í botnsæti Bestu deildarinnar, með níu stig eftir ellefu leiki.
Rætt var um ákvörðun ÍA að láta Jón Þór fara og mögulega ráðningu á Jóa Kalla í Innkastinu sem hægt er að nálgast í spilaranum neðst.

„Samtalið bara heiðarlegt og báðir aðilar áttuðu sig á stöðunni"

TENGT EFNI