Fotbolti.net
20.07.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Elísabet Ester og Snell í Hauka (Staðfest)

Elísabet Ester spilar með Haukum út tímabilið.

Elísabet Ester spilar með Haukum út tímabilið.

Canon

Mynd: Vefur KR

Kvennaboltinn
Haukar hafa fengið tvo leikmenn í kvennalið sitt fyrir lokabaráttuna í Pepsi-deildina, þær Meagan Leigh Snell og Elísabetu Ester Sævarsdóttur.
Meagan Leigh Snell kemur til félagsins frá FC Sky Blue í Bandaríkjunum.

Hún hefur leikið með U17 og U19 ára landsliðum Bandaríkjanna og þykir góður framherji. Hún er 24 ára gömul og var leikmaður ársins í liði Santa Barbara árið 2002.

Elísabet Ester er 22 ára gömul og kemur á láni frá KR þar sem hún hafði aðeins einu sinni fengið að koma inná í sumar.

Hún hafði komið til KR frá Keflavík þar sem hún hefur leikið með meistaraflokki síðan árið 2003.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.