Fotbolti.net
20.07.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskona frá Haítí og Elín í Aftureldingu (Staðfest)

Elín Svavarsdóttir sem hér er í leik með Aftureldingu er komin aftur til félagsins.

Elín Svavarsdóttir sem hér er í leik með Aftureldingu er komin aftur til félagsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kvennaboltinn
Afturelding hefur fengið leikheimild fyrir tvo leikmenn sem eru klárir með liðinu fyrir leikinn gegn KR í Pepsi deildinni í kvöld. Annars vegar er það Samantha Brand og hinsvegar Elín Svavarsdóttir sem lék áður með liðinu.
Samantha Brand er 22 ára gömul. Hún kemur til liðsins frá Bandaríkjunum þaðan sem hún útskrifaðist í háskóla í maí síðastliðnum.

Hún er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað margar stöður á vellinum, jafnt sem framherji eða varnarmaður.

Hún var í síðasta mánuði valin í landslið Haítí en þar er hún gjaldgeng því afi hennar og amma fæddust í Haítí.

Elín Svavarsdóttir kemur til Aftureldingar úr liði í sænsku 1. deildinni þar sem hún lék síðast. Hún hafði ætlað að fara í FH í vor en félagaskipti náðust þá ekki í gegn í tæka tíð.

Svo æfði hún með Val og Aftureldingu og ákvað á endanum að skipta í lið Aftureldingar þar sem hún lék síðast hér á landi sumarið 2008.

Elín mun leika nokkra leiki með Aftureldingu áður en hún heldur til náms í Bandaríkjunum í ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.