20.07.10 - 09:39
Alexander Freyr Tamimi
Alejandro Garcia Canedo í Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Arnar Daði Arnarsson

Haukar hafa staðfest það á heimasíðu sinni að Spánverjinn Alejandro Garcia Canedo er búinn að skrifa undir samning við félagið sem gildir út þetta tímabil.
Leikmaðurinn er 24 ára gamall og var síðast samningsbundinn Barcelona en var leystur undan samning árið 2006. Síðan þá hefur hann spilað áhugamannabolta og stundað nám í Bandaríkjunum.
Canedo hefur spilað með ekki verri leikmanni en Lionel Messi en í myndbandi sem fylgir með fréttinni má meðal annars sjá þennan spænska framherja skora eftir stungusendingu frá þessum besta leikmanni heims.
Haukar eru í neðsta sæti Pepsi deildar karla með sjö stig og gæti Canedo reynst þeim mikill liðsstyrkur í botnbaráttunni, en félagið fékk einnig til sín hinn skoska Jamie McCunnie sem þykir einnig sterkur.

Heimild: Heimasíða Hauka