20.07.10 - 12:04
Hafliði Breiðfjörð
Fyrrverandi gítarleikari Simply Red í Liverpool (Staðfest)

Sammy Lee hefur strítt nýjasta nuddara mikið en sá er fyrrverandi gítarleikari Simply Red.

Mynd: Getty Images

Joe Cole er ekki sá eini sem gekk til liðs við Liverpool í gær því Sylvan Richardson fyrrverandi gítarleikari bresku hljómsveitarinnar Simply Red er einnig kominn til félagsins.
Richardson mun þó ekki sitja í búningsklefanum og spila rólega tónlist heldur kemur hann til félagsins sem nuddari.
Hann var í upprunalegri uppstillingu hljómsveitarinnar árið 1985 en hætti tveimur árum síðar eftir að hafa fengið nóg af tónlistarbransanum.
Hann er nú kominn til Sviss þar sem Liverpool er í æfingabúðum.
,,Þeir hafa strítt mér mikið,\" sagði Richardson. ,,Sérstaklega Sammy Lee.\"
Mick Hucknall söngvari Simply Red verður líklega allt annað en sáttur við þessar fréttir enda er sá mikill stuðningsmaður Manchester United.

Heimild: BBC