20.07.10 - 16:07
Hörður Snævar Jónsson
Lárus Orri Sigurðsson í ÍA (Staðfest)

Lárus Orri í baráttu við Hjört Hjartarsson, þeir munu nú spila saman með Skagamönnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Lárus Orri Sigurðsson er afar óvænt genginn í raðir Skagamanna frá Þór. Þetta staðfesti Þórður Þórðarson þjálfari ÍA í samtali við Fótbolta.net.
Lárus Orri þjálfaði Þór í sumar en hætti vegna erfiðleika í samskiptum við aðalstjórn félagsins.
Hann kom til Þór árið 2005 og lék 61 leik og skoraði 4 mörk í þeim leikjum.
Hann lék ekkert með liðinu í sumar en hefur ákveðið að taka fram skóna og leika með ÍA út sumarið.
,,Við erum búnir að vera í vandræðum með hafsentana okkar, það hafa verið mikil meiðsli hjá þeim frá því í vor,\" sagði Þórður í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Við höfum verið að leita erlendis og innanlands að styrkingu. Það hefur lítið gengi erlendis þannig að okkur datt það ráð í hug að tala við Orra. Hann er gamall Skagamaður og hann var tilbúinn að koma og aðstoða okkur.\"
,,Hann er örugglega í fínu formi. Hann æfði í allan vetur með Þórsurum og spilaði marga leiki þannig að ég hef engar áhyggjur af því.\"
Árni Thor Guðmundsson mun ekkert leika með Skagamönnum í sumar vegna meiðsla og Heimir Einarsson hefur einnig einungs komið við sögu í þremur leikjum.
,,Árni Thor verður frá út tímabilið. Heimir spilaði síðasta leik en hann er spurningamerki út af sínum meiðslum. Ísleifur (Guðmundsson) sem hefur verið að spila þarna líka er líklega með rifinn liðþófa eða tognuð liðbönd, það skýrist í vikunni þegar hann fer í myndatöku. Hann er líklega frá líka þannig að við erum í smá basli með varnarmennina og þetta er hugsuð sem styrking þar.\"
Lárus á að baki 42 A-landsleiki og skoraði í þeim tvö mörk.
Hann lék á ferli sínum til að mynda með West Brom og Stoke og gerði vel.