Fotbolti.net
20.07.10 - 16:12
Hafliði Breiðfjörð

Edda María Birgisdóttir á láni í ÍBV (Staðfest)

Verður ekki með gegn Stjörnunni í undanúrslitum bikarsins

Edda María í leik með Stjörnunni.

Edda María í leik með Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Miðjumaðurinn Edda María Birgisdóttir er gengin til liðs við 1. deildar lið ÍBV á láni frá Stjörnunni. Hún fær leikheimild með ÍBV á morgun.
Edda María sem er 22 ára gömul hefur leikið með Stjörnunni frá því sumarið 2008 er hún kom þangað frá uppeldisfélagi sínu, Fjölni.

Með Stjörnunni var hún fastamaður og lék 44 leiki og skoraði tvö mörk í deild og bikar á tveimur og hálfu tímabili. Hún hafði leikið sex deildarleiki og tvo bikarleiki með Stjörnunni í sumar en átti ekki fast sæti í liðinu á þessu tímabili.

Hún hóf meistaraflokksferil sinn árið 2004 með Fjölni og hefur síðan þá leikið 92 leiki og skorað í þeim sex mörk í deild og bikar.

ÍBV er í næst efsta sæti síns riðils í 1. deild kvenna og mun fara í umspil um sæti í efstu deild á næsta ári. Liðið mætir einmitt Stjörnunni í undanúrslitum VISA-bikarsins næstkomandi laugardag en hluti af lánssamningi félaganna er að hún muni ekki leika gegn Stjörnunni á lánstímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.