Fotbolti.net
20.08.09 - 16:05
Magnús Már Einarsson

Boubacar Sanogo til St Etienne (Staðfest)

Boubacar Sanogo til St Etienne (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

St Etienne í Frakklandi hefur keypt framherjann Boubacar Sanogo frá Werder Bremen.
Franska félagið staðfesti þetta í dag en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Sanogo, sem er 26 ára gamall, var í láni hjá Hoffenheim á síðustu leiktíð en hann hefur núna skrifað undir þriggja ára samning hjá St Etienne.

St Etienne hefur ekki byrjað tímabilið vel en liðið hefur tapað báðum leikjum sínum hingað til og situr á botni frönsku deildarinnar.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.