Fotbolti.net
20.08.09 - 17:06
Gunnar Gunnarsson

Alvaro Negredo frá Real Madrid til Sevilla (Staðfest)

Alvaro Negredo mun spila með Sevilla á komandi leiktíð.

Alvaro Negredo mun spila með Sevilla á komandi leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Alvaro Negredo hefur skrifað undir fjögra ára samning við Sevilla samkvæmt heimildum spænskra fjölmiðla í dag.
Negredo hefur verið orðaður við mörg félög í vikunni og nægir þar að nefna Hull City, Zenit og Real Zaragoza.

Ljóst er að Negredo hefur verið fljótur að hafna því að fara til Hull City þegar hann hefur heyrt af áhuga Sevilla en liðið kemur til með að spila í Meistaradeild Evrópu í vetur.

Talið er líklegt að Sevilla greiði um 14 milljónir evra fyrir Negredo en Real Madrid á þann möguleika að kaupa leikmanninn aftur til sín eftir tvö ár.

Þessi 23ja ára gamli leikmaður var markahæsti Spánverjinn í spænsku La Liga deildinni a síðasta tímabili á eftir David Villa með 19 mörk fyrir Almeria.

Negredo sneri aftur á Bernabeu í sumar eftir að Madridingar notfærðu sér klausu í samningi að geta keypt leikmanninn á 5 milljónir evra frá Almeria.

Þrátt fyrir að hafa verið í eigu Real Madrid hefur hann aðeins spilað æfingaleiki með aðalliði félagsins en hins vegar skorað 32 mörk í 70 leikjum yfir tvö keppnistímabil með Almeria.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.