Fotbolti.net
20.09.20 - 17:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Leicester og Burnley: Maddison áfram á bekknum

James Maddison og Jamie Vardy.

James Maddison og Jamie Vardy.

Canon

Mynd: Getty Images

Leicester tekur á móti Burnley í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Burnley verður án Jóhanns Berg Guðmundssonar sem er því miður frá vegna meiðsla sem hann varð fyrir eftir slæma tæklingu í deildabikarnum í síðustu viku.
Leicester breytir ekki byrjunarliðinu frá sigurleiknum gegn West Brom um síðustu helgi. Wilfried Ndidi er í vörninni og James Maddison byrjar á bekknum.

James Tarkowski er ekki klár í slaginn fyrir Burnley og hinn 22 ára gamli Jimmy Dunne spilar sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni.

Það er ekki mikil reynsla á bekknum hjá Burnley en byrjunarliðin má sjá hér að neðan.

Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Castagne, Ndidi, Soyuncu, Justin, Mendy, Perez, Tielemans, Praet, Barnes, Vardy.
(Varamenn: Ward, Morgan, Maddison, Albrighton, Iheanacho, Choudhury, Fuchs)

Byrjunarlið Burnley: Pope, Bardsley, Long, Dunne, Taylor, McNeil, Westwood, Brownhill, Brady, Wood, Rodriguez.
(Varamenn: Peacock-Farrell, Lowton, Pieters, Vydra, Thomas, Benson, Driscoll-Glennon)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.