Fotbolti.net
20.10.10 - 16:49
Magnús Már Einarsson

Darius Vassell til Leicester (Staðfest)

Darius Vassell til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur krækt í framherjann Darius Vassell en hann gerði samning við félagið út tímabilið.
Þessi þrítugi leikmaður þekkir Sven-Goran Eriksson knattspyrnustjóra Leicester vel.

Vassell lék á sínum tíma undir stjórn Erisson hjá Manchester City sem og í enska landsliðinu.

Vassell kemur frítt til Leicester en hann var án félags eftir að hafa yfirgefið tyrkneska félagið Ankaragucu í sumar.

Eriksson tók við stjórnartaumunum hjá Leicester á dögunum og Vassell er þriðji leikmaðurinn sem hann fær til félagsins en áður höfðu Curtis Davies og Kyle Naughton komið á láni.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.