20.10.10 - 15:41
Hafliði Breiðfjörð
Gunnlaugur Jónsson samdi við KA (Staðfest)

Gunnlaugur Jónsson er tekinn við þjálfun KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA hefur staðfest á vef sínum að Gunnlaugur Jónsson er nýr þjálfari liðsins en hann tekur við starfinu af Dean Martin sem var spilandi þjálfari í fyrra en er genginn í raðir ÍA.
Gunnlaugur kemur til félagsins frá Val þar sem hann þjálfaði í sumar en hætti að tímabilinu loknu.

Gunnlaugur er fæddur árið 1974 og gríðarlega reynslumikill sem leikmaður. Hann hefur verið atvinnumaður með KFC Uerdingen, Motherwell FC, Kongsvinger og Örebro SK á ferli sínum auk þess að leika með ÍA, KR og Selfoss hér á landi. Með ÍA varð hann Íslandsmeistari árin 1996 og 2001 og svo hefur hann þrisvar orðið bikarmeistari. Tvívegis með Skaganum og svo KR. Hann lagði skóna á hilluna síðasta haust eftir að hafa spilað 9 leiki með Selfossi þar sem hann var einnig þjálfari. Kappinn á einnig að baki 12 A-landsleiki og fjölda yngri landsleikja.
Hann hóf þjálfaraferil sinn sem spilandi þjálfari á Selfossi fyrir tímabilið 2009. Hann gerði gott verk þar og undir hans stjórn unnu Selfyssingar fyrstu deildina og komust upp í úrvalsdeild. Fyrir lokaumferð mótsins það sumar spurðist svo út að Gunnlaugur væri búinn að semja við Val og olli það miklu fjaðrafoki eins og flestum fótboltaáhugamönnum ætti að vera í fersku minni.
Það mál endaði með því að Gunnlaugur tók við Val haustið 2009 og þar starfaði hann í sumar. Undir hans stjórn hafnaði liðið í 7. sæti deildarinnar og í lok september komust Gunnlaugur og Valur að samkomulagi um starfslok.

Heimild: Vefur KA