Fotbolti.net
20.10.10 - 17:50
Magnús Már Einarsson

Reynir Leósson til ÍA (Staðfest)

Reynir er mættur á Skagann á nýjan leik.

Reynir er mættur á Skagann á nýjan leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

ÍA hefur fengið varnarmanninn Reyni Leósson frá Val en hann skrifaði undir samning við Skagamenn nú fyrir stundu.
Reynir, sem er 31 árs, er uppalinn hjá ÍA en hann lék síðast með liðinu árið 2005.

Í kjölfarið fór Reynir til Svíþjóðar þar sem hann lék með Trelleborg í eitt ár.

Hann var síðan í tvö ár hjá Fram áður en hann gekk til liðs við Valsmenn þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil.

Yfirlýsing á heimasíðu ÍA sagði eftirfarandi:

Reynir Leósson í ÍA
Í dag var gengið frá samningum milli ÍA og Vals annars vegar og Reynis Leóssonar hins vegar um að Reynir leiki með Skagamönnum árið 2011. Eins og allir þekkja er Reynir uppalinn hjá ÍA en fór til Svíþjóðar árið 2006, en lék síðan með Fram og Val þegar hann kom aftur til Íslands. Reynir er einn af leikjahæstu leikmönnum ÍA og bætir því enn við sig leikjum á næsta ári.

Það er fagnaðarefni að Reynir skili sér aftur á Skagann og Þórður Þórðarson þjálfari afar ánægður með aðnjóta krafta hans í baráttunni framunda. Þegar skrifað hafði verið undir samninga þá sagði Reynir að þetta væri eintóm hamingja að vera kominn aftur til ÍA. Hann vildi leggja sitt að mörkum til að koma liðinu upp í efstu deild um leið og hann miðlaði af reynslu sinni til yngri leikmanna á æfingum og í leikjum. Hann sagðist hafa séð yfir helming leikja ÍA í fyrra og aflað sér upplýsinga um Þórð þjálfara. Honum hefði litist mjög vel á það sem hann hefði séð og heyrt og þess vegna væri hann óendanlega glaður með að koma aftur til liðsins sem hann héldi með og hefði alið hann upp. Að sjálfögðu væri það markmiðið að komast upp í efstu deild þar sem ÍA ætti heima en að framundan væri mikil vinna og agi til þess að ná því markmiði. Knattspyrnufélag ÍA þakkar Valsmönnum fyrir þeirra þátt í að ganga frá samningum við ÍA og Reyni. Nú er að koma endanleg mynd á leikmannahópinn fyrir næsta sumar, en þó er áhugi á að fá miðjumann til liðs við félagið
Reynir hefur leikið með Val undanfarin tvö tímabil.

Reynir hefur leikið með Val undanfarin tvö tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.