Fotbolti.net
20.10.11 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð

Haukur Heiðar Hauksson í KR (Staðfest)

Haukur Heiðar fagnar marki með KA í sumar.

Haukur Heiðar fagnar marki með KA í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Haukur Heiðar Hauksson fyrirliði KA er genginn til liðs við KR og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Frá þessu var greint á vef KR í dag en félagaskiptin hafa legið í loftinu um nokkurn tíma.

Haukur Heiðar sem er tvítugur hefur leikið með KA síðan árið 2007 en hann spilar oftast sem hægri bakvörður þó hann sé fjölhæfur og geti vel spilað fleiri stöður á vellinum.
Hann hefur skorað átta mörk í 91 bikar- og deildarleik með KA en lék fyrst með mfl. KA í 4-0 sigri á Tindastóli á Powerdade mótinu 27. janúar 2007.

Frumraun Hauks á Íslandsmóti var í 2-2 jafntefli við Fjarðabyggð 12. maí 2008. Hann hefur einnig leikið sjö leiki með U19-landsliðinu.

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.