Fotbolti.net
21.05.10 - 12:50
Brynjar Ingi Erluson

David Villa til Barcelona (Staðfest)

David Villa

David Villa

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur gengið frá kaupunum á David Villa framherja Valencia og er kaupverðið 34,2 milljónir punda.
Villa, sem er 28 ára gamall stóðst læknisskoðun fyrr í dag og skrifaði undir fjögurra ára samning við spænsku meistarana í kjölfarið.

Barcelona hefur kost á því að framlengja samning hans svo um eitt ár, en hann er hæstánægður með að vera kominn til félagsins.

,,Hver einasti maður yrði ánægður með að ganga í þetta lið og eins og allir segja þá er þetta besta lið í heimi,\" sagði Villa.

,,Ég er mjög ánægður og stoltur af því að vera hérna. Það er alltaf erfitt að skora mörk, en þegar þú ert með Xavi, Messi, Busquets, Keita eða Pedro í kringum þig þá ætti það að vera mun auðveldara,\" sagði hann að lokum.

Villa lék fimm tímabil með Valencia þar sem hann lék 166 leiki og skoraði 107 mörk, en koma hans til Barcelona mun væntanlega hafa einhver áhrif á stöðu Zlatan Ibrahimovic og Thierry Henry hjá liðinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.