Fotbolti.net
21.05.10 - 17:36
Magnús Már Einarsson

Marouane Chamakh til Arsenal (Staðfest)

Marouane Chamakh til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur staðfest að Marouane Chamakh framherji Bordeaux muni koma til félagsins í sumar.
Þessi 26 ára gamli leikmaður mun koma frítt til Arsenal þegar samningur hans í Frakklandi rennur út.

Arsenal hefur ekki greint frá því hvers langur samningur Chamakh er en félagið segir að hann sé til langs tíma.

,,Chamakh er framherji sem hefur mikla hæfileika og alla eiginleika til að koma til Englands og standa sig mjög vel,\" sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.

,,Hann er mjög góður í loftinu og hann spilar fyrir liðið. Hann er frábær viðbót við okkar hóp.\"

Chmakh er fæddur og uppalinn í Frakklandi en foreldrar hans eru frá Marokkó. Hann hefur alls skoraði 27 mörk í 53 landsleikjum með Marokkó á ferli sínum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.