Fotbolti.net
21.06.10 - 10:33
Magnús Már Einarsson

Stephen Hunt til Wolves (Staðfest)

Stephen Hunt til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur keypt kantmanninn Stephen Hunt frá Hull fyrir óuppgefna upphæð.
Wolves bauð fimm milljónir punda í Hunt fyrr á árinu en Hull hafnaði því tilboði.

Hunt, sem er 28 ára, náði hins vegar samkomulagi við Hull um að hann fengi að fara frá félaginu eftir að það féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.

Hunt var orðaður við bæði Newcastle og WBA en Wolves náði að lokum að krækja í hann.

Hann er annar leikmaðurinn sem Wolves fær frá Hull í sumar en fyrir helgi fengu Úlfarnir einnig varnarmanninn Steven Mouyokolo frá Hull.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.