21.06.10 - 19:31
Magnús Már Einarsson
Gary McSheffrey til Coventry (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Coventry, hefur fengið nýjan liðsfélaga en félagið hefur fengið framherjann Gary McSheffrey frá Birmingham.
Þessi 27 ára gamli leikmaður kemur frítt til Coventry þegar samningur hans við Birmingham rennur út í júlí.
McSheffrey lék áður með Coventry áður en Birmingham keypti hann á fjórar milljónir punda árið 2006.
Hnémeiðsli settu strik í reikninginn hjá McSheffrey þegar hann lék með Birmingham og á síðasta tímabili var hann í láni hjá Leeds.
Á sínum tíma skoraði McSheffrey 53 mörk með Coventry og stuðningsmenn félagsins vonast til að hann haldi áfram að raða inn mörkum á næsta tímabili.

Heimild: BBC