Einar Freyr: Ég var búinn að æfa þetta á æfingu í gær


Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net


Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
„Mjög sáttur að hafa náð í stig. Við spiluðum flottan leik og áttum skilið að fá stigið" sagði Einar Freyr Halldórsson, markaskorari Þórs í 1-1 jafntefli gegn FH.
Fannst þér að Þór átti skilið meira úr þessum leik?
„Já já, Fáum alveg góðar stöður í leiknum sem við getum gert betur í, en bara sáttur með stigið."
Hvað er það góða við frammistöðuna í dag?
„Við vorum búnir að fókusa að fara betur í varnarleikinn, mér fannst hann vera flottur í dag. Við fengum ekki of mörg færi á okkur, það er svona jákvæðni punkturinn í dag."
Einar skoraði eina mark Þórs í dag úr víti.
„Ég var búinn að æfa þetta á æfingu í gær og mér leið vel með þetta. Klúðraði síðasta víti, setti hann í hitt hornið, sáttur að hafa skorað."



