Fotbolti.net
21.06.26 - 20:31
Brynjar Ingi Erluson

Kunnugleg aukaspyrnubrella en markið dæmt af - „Ætlar ekki að fara kynda undir einhverjar samsæriskenningar“

Mehdi Taremi skoraði eftir stórkostlega útfærða aukaspyrnu en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Mehdi Taremi skoraði eftir stórkostlega útfærða aukaspyrnu en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Canon

Mynd: EPA

Hörður Magnússon og Ólafur Helgi Kristjánsson mynda saman skemmtilegt tvíeyki í lýsingunum á HM á RÚV en þeir buðu upp á gullmola þegar mark var dæmt af Írönum vegna rangstöðu.
Íranir buðu upp á kunnuglega útfærslu á aukaspyrnu þegar Ramin Rezaeian renndi boltanum inn fyrir á Mehdi Taremi, sem kláraði snyrtilega niðri í hægra hornið. Markið stóð þó ekki þar sem það var dæmt af vegna rangstöðu.

Útfærslan minnti óneitanlega á mark Wout Weghorst gegn Argentínu í uppbótartíma í 8-liða úrslitum HM í Katar fyrir fjórum árum. Þá laumaði Teun Koopmeiners boltanum inn fyrir varnarvegginn á Weghorst sem sneri og setti boltann í netið.

Hörður og Ólafur voru afar hrifnir af þessari útfærslu Írana í kvöld.

„Frábær útfærsla, stórbrotin útfærsla. Meiriháttarmark. Minnir á Hollendinga fyrir fjórum árum. Mehdi Taremi skorar eftir meiriháttar brellu frá Írönum,“ sagði Hörður í lýsingunni og tók Ólafur undir.

„Tek undir með þér Hörður. Þessu áttum við ekki von á, ekki heldur Belgarnir. Útfærslan frábær og framkvæmdin meiriháttar. Frísklega gert hjá Írönum að koma með brellu.“

Þegar leið á lýsingunni hafði FIFA ekki birt myndir af rangstöðunni og var Hörður orðinn heldur óþolinmóður.

„Búið að taka þá svakalega langan tíma og fóru nú samsæriskenningar á flugi á vítið sem Sviss fékk og það birtust engar teikningar af því fyrr en löngu eftir leikinn. Menn vildu meina að það hafi verið rangstaða en FIFA sagði það hafa verið rafmagnsleysi,“ sagði Hörður og svaraði Ólafur því. „Já, 2026 í Bandaríkjunum á HM að það séu tæknilegir örðuleikar en þú ætlar ekkert að fara kynda undir einhverjar samsæriskenningar Hörður.“

Herði varð hugsað til Írana sem voru eflaust að bíða eftir sönnunargögnum í málinu.

„Neinei, ég vildi bara varpa þessu fram en ég er viss um að Íranir vilji fá einhver sönnunargögn,“ sagði Hörður.

FIFA birti sönnunargögnin stuttu síðar og mátti þar sjá að Taremi var rangstæður.

Staðan er áfram markalaus þegar hálftími er eftir.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.