Haraldur Freyr: Hefðum getað stolið þessu
Auglýsing

Haraldur Freyr segist vera smá svekktur með stigasöfnunina hingað til

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík heimsótti Val í 11. umferð Bestu deildar karla. Liðin skildu jöfn, 1-1. Fótbolti.net ræddi við Harald Frey Guðmundsson, þjálfari Keflarvíkur, að leik loknum.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Keflavík
„Úr því sem komið var, við vorum 1-0 undir og náðum að jafna leikinn, bara fín úrslit á erfiðum útivelli. Við byrjuðum frekar illa, vorum „sloppy" og með of háa línu, náðum að laga það og mér fannst við heilt yfir góðir í dag," sagði Haraldur um leikinn.
Er Haraldur sáttur með stigið.
„Þetta var mjög gott stig á endanum og hefðum getað stolið þessu í lokin en að sjálfsögðu hefði Valur líka getað sett annað markið og sennilega klárað leikinn. En svona er þetta, stundum fram og til baka. "
Valsarar voru betri framan af en Keflvíkingar komust svo betur og betur inn í leikinn eftir því sem leið á.
„Þegar þeir eiga sín bestu augnablik þá ná þeir ekki að skora mark og svo fáum við tækifærin og jöfnum og svo eftir það finnst mér við vera ofan á og nær því að klára leikinn. "
„Alpha Conteh var frábær í dag og búinn að vera frábær fyrir okkur síðan hann kom," sagði Haraldur um Alpha Conteh sem átti frábæra frammistöðu í dag.