Lengjudeildin: Þróttarar halda toppsætinu - Fylkir skoraði fimm í endurkomusigri

Aron Snær Ingason fiskaði víti og skoraði eitt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Tyrfingsson skoraði tvö í endurkomu Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnþór Ari skoraði í jafntefli gegn Grindavík

Þróttur heldur toppsætinu í Lengjudeildinni eftir 3-1 sigur á Ægi í Þorlákshöfn, Fylkir svaraði tveggja marka forystu Gróttu með mögnuðum 5-2 endurkomusigri og HK og Grindavík skiptu stigunum í Kórnum.
Ægismenn byrjuðu vel gegn Þrótturum og komust snemma yfir þegar Jordan Adeyemo fékk boltann í teignum og vippaði honum snyrtilega yfir Þórhall í markinu.
Adeyemo fékk dauðafæri til að bæta við öðru marki þegar hann slapp einn í gegn en stýrði boltanum framhjá. Þróttarar voru líklegri það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en Ægismenn gerðu vel í að halda þeim í skefjum.
Þróttarar mættu sterkir til leiks í síðari hálfleik. Aron Snær Ingason fiskaði vítaspyrnu og Sigurður Egill Lárusson skoraði örugglega af punktinum.
Adam Árni Róbertsson kom inn af bekknum um miðjan síðari hálfleik og var ekki lengi að láta til sín taka. Hann skoraði með sinni fyrstu snertingu, skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu og kom Þrótti yfir.
Ægismenn lögðu allt í sölurnar undir lokin og lágu á Þrótturum en það skilaði ekki marki. Þróttarar fóru þess í stað í sókn hinum megin, Kári Kristjánsson kom boltanum á Aron Snæ sem gerði út um leikinn.
Þróttur er áfram á toppnum með 22 stig en Ægir er í næstneðsta sæti með sjö stig.
Fylkir með magnaða endurkomu
Fylkir er í harðri toppbaráttu við Þrótt og liðið sýndi mikinn karakter á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi þar sem það vann 5-2 endurkomusigur á Gróttu.
Björgvin Brimi Andrésson og Mattías Kjeld komu Gróttu í 2-0 forystu í fyrri hálfleik. Björgvin skoraði eftir stórglæsilega skyndisókn á 8. mínútu og Mattías bætti við öðru marki þegar hann las skelfilega sendingu til baka, komst framhjá Ólafi og skoraði.
Skipulag Gróttu gekk vel upp í fyrri hálfleik en heimamenn hrundu eftir hlé.
Guðmundur Tyrfingsson minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 49. mínútu eftir klaufalegt brot í vörn Gróttu. Aron Snær Guðbjörnsson, sem kom inn af bekknum í hálfleik, jafnaði með skalla eftir hornspyrnu og skömmu síðar kom Máni Austmann Hilmarsson Fylki yfir.
Kári Sigfússon, sem hefur verið frábær á tímabilinu, kom gestunum í tveggja marka forystu með góðum skalla áður en Guðmundur gerði út um leikinn á 83. mínútu.
Markið kom eftir að Grótta gaf boltann frá sér með slæmri sendingu til baka. Dagur Traustason komst inn í sendinguna, kom boltanum á Guðmund sem skoraði sitt annað mark og gulltryggði sigur Fylkis.
Fylkir er í öðru sæti með 21 stig, aðeins einu stigi á eftir Þrótti, en Grótta er í 8. sæti með tólf stig.
Fjögurra marka jafntefli í Kórnum
HK og Grindavík gerðu 2-2 jafntefli í Kórnum.
Atli Þór Gunnarsson braut ísinn á 15. mínútu þegar Svavar Örn Þórðarson átti fyrirgjöf á Atla, sem var einn og óvaldaður í teignum og setti boltann í netið.
Lárus Orri Ólafsson jafnaði metin aðeins fimm mínútum síðar með marki beint úr aukaspyrnu.
Arnþór Ari Atlason kom HK aftur yfir undir lok fyrri hálfleiks með glæsilegu marki. Hann keyrði fram völlinn frá miðjunni og smellti boltanum í fjærhornið.
HK var líklegra til að bæta við mörkum í byrjun síðari hálfleiks og átti meðal annars skot í stöng. Grindavík náði hins vegar að jafna gegn gangi leiksins þegar Rúnar Ingi Eysteinsson setti boltann á milli fóta Ólafs og í netið.
Niðurstaðan varð 2-2 jafntefli. HK er í 5. sæti með sextán stig en Grindavík er í 10. sæti með átta stig.
HK 2 - 2 Grindavík
1-0 Atli Þór Gunnarsson ('15 )
1-1 Lárus Orri Ólafsson ('20 )
2-1 Arnþór Ari Atlason ('43 )
2-2 Rúnar Ingi Eysteinsson ('72 )
Lestu um leikinn
Ægir 1 - 3 Þróttur R.
1-0 Jordan Adeyemo ('8 )
1-1 Sigurður Egill Lárusson ('49 , víti)
1-2 Adam Árni Róbertsson ('63 )
1-3 Aron Snær Ingason ('93 )
Lestu um leikinn
Grótta 2 - 5 Fylkir
1-0 Björgvin Brimi Andrésson ('8 )
2-0 Mattías Kjeld ('23 )
2-1 Guðmundur Tyrfingsson ('49 )
2-2 Aron Snær Guðbjörnsson ('57 )
2-3 Máni Austmann Hilmarsson ('59 )
2-4 Kári Sigfússon ('67 )
2-5 Guðmundur Tyrfingsson ('83 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Fylkir | 10 | +6 | 21 |
| 2 | Þróttur R. | 9 | +11 | 19 |
| 3 | Vestri | 11 | +2 | 19 |
| 4 | Afturelding | 9 | +6 | 16 |
| 5 | Leiknir R. | 10 | +1 | 15 |
| 6 | HK | 9 | 0 | 15 |
| 7 | Njarðvík | 10 | +4 | 14 |
| 8 | Grótta | 9 | -5 | 12 |
| 9 | ÍR | 10 | -5 | 11 |
| 10 | Grindavík | 8 | -3 | 7 |
| 11 | Ægir | 9 | -6 | 7 |
| 12 | Völsungur | 10 | -11 | 6 |