Fotbolti.net
21.06.26 - 22:02
Hafþór Örn Laursen

Haddi: Við erum enn að leita að því

Auglýsing
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Jónasson, betur þekktur sem Haddi, þjálfari KA, kom í viðtal eftir 3-1 tap KA gegn Breiðablik á Kópavogsvelli í 11. umferð Bestu Deildarinnar.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 KA
„Ég er með blendnar tilfinningar eftir þennan leik'', sagði Haddi eftir leikinn.

„Ég var virkilega ánægður með KA-liðið í dag, og vinnusemina í okkur. Við lendum undir og þegar við jöfnum fannst mér við mjög flottir, en á hinn bóginn er maður svekktur eftir tapið.''

„Ég sagði við strákana eftir leik að ég tek margt gott úr leiknum. Ef þetta er það sem við munum bjóða uppá , þá vinnusemin og hugarfarið, þá munu hlutirnir ganga upp.''


Á 38. mínútu þurfti Samuel Kroon að fara útaf og var Haddi spurður út í hvað gerðist.

„Hann var stífur aftan á læri. Við hvíldum hann í seinasta leik vegna þess, en svo byrjaði hann að finna til og við ákváðum að taka hann útaf áður en það yrði of mikið.''

Haddi var spurður út í hvað hann tekur úr fyrri umferð deildarinnar, en 11 leikir eru búnir.

„Staðan er þannig að við erum með færri stig en við ætluðum okkur. Aðstæður hafa breyst, við höfum yngt liðið upp frá því á seinasta sumri og lent í skakkaföllum. Það hefur bjátað á en það er líka margt jákvætt.''

„Við erum enn að leita að því hvernig við getum verið besta útgáfan af sjálfum okkur. Af fremstu sex leikmönnum var bara Grímsi hérna í fyrra. Við vitum hvað þarf að laga og við erum að vinna í því og þess vegna er ég ánægður með liðið í dag.''


KA spilar sinn næsta leik í Garðabænum gegn Stjörnunni þann 28. júní.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.