21.07.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Stefán Daníel og Jón Gunnar til KFG (Staðfest)

Lárus Guðmundsson þjálfari KFG.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

KFG úr Garðabæ hefur fengið liðsstyrk fyrir síðari hluta móts í þriðju deild karla.
Stefán Daníel Jónsson er kominn til félagsins frá Haukum og framherjinn Jón Gunnar Björnsson er kominn frá Stjörnunni.
Stefán Daníel er uppalinn Stjörnumaður en hann gekk í raðir Hauka í fyrra og kom talsvert við sögu í fyrstu deildinni. Í sumar hefur þessi ungi miðjumaður hins vegar einungis leikið einn leik í Pepsi-deildinni.
Jón Gunnar er þegar búinn að leika einn leik með KFG en byrjunin var afleitt enda var hann búinn að fá reisupassan um 10 mínútum eftir að hann kom inná sem vara maður.
KFG er sem stendur í öðru sæti í A riðli þriðju deildarinnar en liðið á í harðri keppni um sæti í úrslitakeppninni.