Fotbolti.net
21.07.10 - 16:01
Magnús Már Einarsson

Eduardo da Silva til Shakhtar Donetsk (Staðfest)

Eduardo da Silva til Shakhtar Donetsk (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Úkraínska félagið Shakhtar Donetsk hefur keypt framherjann Eduardo da Silva frá Arsenal.

Þessi 27 ára gamli leikmaður er búinn að að standast læknisskoðun og skrifa undir fjögurra ára samning við Shakhtar.

Aston Villa, Valencia og Lyon sýndu einnig áhuga á að fá Eduardo en nú er ljóst að hann mun fara til Úkraínu.
Talið er að Shakhtar borgi 7,5 milljónir punda fyrir Eduardo sem mun fá 50 þúsund pund í vikulaun hjá félaginu.

Eduardo hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann fótbrotnaði mjög illa í leik gegn Birmingham árið 2008 en á síðustu leiktíð skoraði hann tvö mörk í 24 deildarleikjum með Arsenal.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.