21.07.10 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Danny Wilson til Liverpool (Staðfest)

Danny Wilson (til hægri).

Mynd: Getty Images

Danny Wilson (til hægri).

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur keypt varnarmanninn unga Danny Wilson frá Rangers í Skotlandi.
Liverpool borgar tvær milljónir punda fyrir leikmanninn en þrjár milljónir punda gætu bæst við ef Wilson stendur sig vel hjá félaginu.
Wilson, sem er 18 ára, átti eitt ár eftir af samningi sínum við Rangers en hann hafnaði nýju samningstilboði frá félaginu á dögunum.
,,Það voru önnur félög sem eru í Meistaradeildinni sem höfðu áhuga á mér en um leið og Liverpool kom inn í myndina þá var það eina félagið sem ég vildi fara til,\" sagði Wilson.
,,Þetta er mikil áskorun fyrir mig. Þetta er ein besta deild í heimi og ég mun leika með einu stærsta félagi í heimi.\"

Heimild: BBC