21.08.09 - 18:10
Hafliði Breiðfjörð
Kyrgiakos til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur gengið frá kaupum á gríska landsliðsmanninum Sotirios Kyrgiakos sem kemur frá AEK Aþenu en kaupverðið er talið 2 milljónir punda.
Kyrgiakos sem er fyrrverandi miðvörður Rangers í Skotlandi er þrítugur. Hann gerir tveggja ára samning við Liverpool með möguleika á þriðja árinu.
,,Hann er leikmaður sem hefur reynslu sem getur vonandi hjálpað okkur í vörninni,\" sagði Rafael Benítez stjóri Liverpool.
,,Hann er góður leikmaður í loftinu, sterkur og ákveðinn. Við vorum að leita að leikmanni með reynslu.\"
,,Við vissum af leikmanninum þegar hann var hjá Rangers og höfum horft á myndbönd af honum hján Frankfurt og með landsliðinu. Njósnarar okkar höfðu miklar upplýsingar.\"
,,Við höfum talað um það sem hann hefur gert áður og það sem hann þarf að gera fyrir okkur. Það var gott. Hann veit hvað við viljum og er tilbúinn að vinna.\"
Kyrgiakos hafði komist í gegnum læknisskoðun hjá Liverpool áður en hann skrifaði undir samninginn og verður klár í slaginn þegar liðið mætir Aston Villa á mánudagskvöldið en Daniel Agger og Martin Skrtel eru meiddir.

Heimild: BBC