Fotbolti.net
21.10.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Danny Shittu til Millwall (Staðfest)

Danny Shittu til Millwall (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Millwall, sem leikur í næstefstu deild á Englandi, hefur náð samningum við nígeríska varnarmanninn Danny Shittu.
Þessi þrítugi leikmaður hefur samþykkt að gera þriggja mánaða samning við Millwall.

Shittu yfirgaf Bolton fyrr á árinu og hefur verið án félags síðan þá.

,,Ég veit aðeins um félagið þar sem vinir mínir eru stuðningsmenn og það sem ég hef heyrt hingað til er jákvætt,\" sagði Shittu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.