21.10.10 - 15:48
Magnús Már Einarsson
Jamie McCunnie í Grindavík (Staðfest)

Mynd: Grindavík

Mynd: Grindavík
Skoski varnarmaðurinn Jamie McCunnie skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Grindavík.
Hann kemur til Grindavíkur frá Haukum þar sem hann kom í félagaskiptaglugganum í júlí og lék 10 leiki með liðinu og vakti athygli fyrir góða frammistöðu.
McCunnie er 27 ára varnar- eða miðjumaður og hefur leikið 96 leiki í skosku úrvalsdeildinni með Dunfermline og Dundee United.
McCunnie lék með Ross County í 1. deild í tvö ár og síðan með Dunfermline í tvö ár.
Þaðan fór hann til enska 2. deildarliðsins Hartlepool árið 2007 og lék þar í tvö ár en spilaði á síðasta tímabili með East Fife í skosku 2. deildinni.