Fotbolti.net
21.10.11 - 15:30
Sebastían Sævarsson Meyer

Timo Hildebrand til Schalke (Staðfest)

Timo Hildebrand til Schalke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Fyrrverandi landsliðsmarkvörður Þjóðverja, Timo Hildebrand er genginn til liðs við Schalke á frjálsri sölu og skrifaði undir eins árs samning við félagið.
Hildebrand hefur verið án félags síðan í sumar eftir að samningur hans hjá Sporting Lissabon rann út.

Þessi fyrrverandi markvöður Stuttgart og Valencia mun leysa Ralf Fahrmann af í marki Schalke sem sleit krossband í leik um síðustu helgi og verður því frá nokkra mánuði.

Hildebrand gæti því leikið sinn fyrsta leik fyrir Schalke á sunnudaginn þegar liðið mætir Leverkusen á útivelli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.