Fotbolti.net
21.10.11 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Gunnar Valur í KA (Staðfest)

Gunnar Valur Gunnarsson og Bjarni Áskelsson, formaður knattspyrnudeildar KA, staðfesta tveggja ára samning í KA-heimilinu í dag.

Gunnar Valur Gunnarsson og Bjarni Áskelsson, formaður knattspyrnudeildar KA, staðfesta tveggja ára samning í KA-heimilinu í dag.

Canon

Mynd: Heimasíða KA

KA hefur fengið Gunnar Val Gunnarsson fyrirliða Fjölnis til liðs við sig en hann gerði tveggja ára samning við félagið í dag.
Gunnar Valur er uppalinn KA-maður en hann hefur þó aldrei leikið með meistaraflokki félagsins. Árið 2003 fór Gunnar Valur til Fjölnis en þessi 29 ára gamli leikmaður hefur skorað sjö mörk í 188 deildar og bikarleikjum með liðinu síðan þá.

Gunnar Valur hefur verið fyrirliði Fjölnis undanfarin tvö tímabil en hann hefur leikið með liðinu í efstu þremur deildunum á Íslandi og farið tvívegis í bikarúrslit.

,,Það er algjörlega frábært að Gunnar Valur hafi ákveðið að spila með uppeldisfélagi sínu. Við erum að fá afar traustan varnarmann sem hefur verið mjög stöðugur í sínum leik og hreinlega vanmetinn í mörg ár,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA á heimasíðu félagsins í dag.

,,Hann hefur tekið þátt í ævintýrinu í Grafarvogi frá því árið 2003 þegar Fjölnir var í 2. deild, og farið upp um tvær deildir og verið fyrirliði liðsins meginhluta tímans. Það er afar mikilvægt að endurheimta leikmann sem er uppalinn í félaginu og hann mun verða góð fyrirmynd fyrir okkar ungu leikmenn.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.