21.10.11 - 18:13
Magnús Már Einarsson
Jón Vilhelm í ÍA (Staðfest)

Jón Vilhelm í leik með ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Jón Vilhelm í leik með ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Jón Vilhelm Ákason er genginn aftur í raðir ÍA en hann kemur til félagsins frá Val. Þessi 24 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá ÍA en hann gerði tveggja ára samning við félagið í dag.
,,Ljóst er að Jón Vilhelm er mikill hvalreki á fjörur Langasands og er honum ætlað stórhlutverk í liði Skagamanna í Pepsi-deildinni á komandi leiktíð, sem og um ókomna tíð,\" segir á heimasíðu ÍA.
Jón Vilhelm, sem er miðju- og kantmaður, lék með ÍA upp yngri flokkana og alls fjögur tímabil í meistaraflokki áður en hann gekk í raðir Vals haustið 2009.
Í sumar skoraði Jón Vilhelm fjögur mörk í nítján leikjum með Val í Pepsi-deildinni en í fyrrasumar skoraði hann einnig fjögur mörk í sautján leikjum.
,,Jón Vilhelm er klassa leikmaður sem getur gert ótrúlegustu hluti í sóknarleiknum. Hann hefur hæfileika og getu til þess að búa til hluti frammá við sem mjög fáir leikmenn á Íslandi geta. Ég ætlast til mikils af Jóni og hef fulla trú á því að hann, með sína reyslu, hæfileika og getu, eigi eftir að reynast okkur Skagamönnum gulls ígildi á komandi leiktíðum,\" sagði Þórður Þórðarson þjálfari Skagamanna.

Heimild: Heimasíða ÍA