21.11.11 - 10:15
Magnús Már Einarsson
Alex Freyr Hilmarsson í Grindavík (Staðfest)

Guðjón Þórðarson þjálfari Grindavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Þórðarson þjálfari Grindavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík hefur fengið Alex Freyr Hilmarsson til liðs við sig frá Sindra en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið um helgina.
Alex er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Grindvíkinga síðan Guðjón Þórðarson tók við þjálfun liðsins á dögunum.
Þessi 18 ára gamli miðjumaður hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Sindra undanfarin þrjú ár.
Í sumar skoraði Alex sjö mörk í fimmtán leikjum með Hornfirðingum í þriðju deildinni.
Þá hefur knattspyrnudeild Grindavíkur einnig ráðið Róbert Magnússon sjúkraþjálfara til starfa.
Róbert hefur starfað mikið með Guðjóni Þórðarsyni í gegnum tíðina en hann var meðal annars sjúkraþjálfari hjá Barnsley á sínum tíma. Róbert, sem er fyrrum leikmaður FH, var einnig aðstoðarmaður Guðjóns hjá ÍA árið 2007.