21.11.11 - 19:00
Magnús Már Einarsson
Habib Beye til Doncaster (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Doncaster Rovers hefur fengið varnarmanninn Habib Beye á láni frá Aston Villa. Þessi 34 ára gamli leikmaður verður á láni hjá Doncaster í þrjá mánuði.
Beye kom til Aston Villa frá Newcastle fyrir tveimur árum en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi.
Beye hefur einungis leikið níu deildarleiki með Aston Villa á tíma sínum hjá félaginu.
Eini leikur hans á þessu tímabili var í sigri Villa á Hereford í enska deildabikarnum.
Doncaster hefur styrkt leikmannahóp sinn talsvert undanfarna mánuði en Beye er þriðji bakvörðurinn sem kemur til félagsins á eftir Herita Ilunga og Pascal Chimbonda.
Liðið tapaði 2-0 gegn Barnsley um helgina og er ennþá á botni Championship deildarinnar.

Heimild: Sky