Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 22. febrúar 2020 20:58
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mahrez: Við erum klárir í slaginn gegn Real Madrid
Mynd: Getty Images
Manchester City hafði betur gegn Leicester City fyrr í kvöld, lokatölur á King Power vellinum voru 0-1.

Gabriel Jesus skoraði mark gestanna en það var Riyad Maherz sem lagði upp markið.

„Þetta var mjög erfiður leikur, það er alltaf erfitt að koma hingað. Þeir spiluðu mjög aftarlega, með fimm í vörninni, við reyndum að brjóta þá niður en það gekk erfiðlega. Í seinni hálfleik fengum við meira pláss til að vinna með og það gerði að lokum gæfumuninn," sagði Mahrez.

Mahrez ætlaði að láta vaða á markið þegar hann sá hlaupið hjá Jesus sem skoraði sigurmarkið.

„Ég ætlaði að skjóta en svo sá ég hlaupið hjá Gabi, ég sá það strax að hann myndi ekki vera rangstæður svo ég ákvað að senda og hann afgreiddi boltann snyrtilega í markið."

Manchester City mætir Real Madrid í Meistaradeildinni í komandi viku.

„Þetta var fullkominn undirbúningur fyrir leikinn gegn Real Madrid, við erum klárir í slaginn," sagði Mahrez.
Athugasemdir
banner
banner
banner