Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   fim 22. febrúar 2024 17:40
Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik missir af Aroni Jó sem valdi að vera áfram í Val (Staðfest)
Aron Jóhannsson verður áfram leikmaður Vals næstu þrjú tímabil og því ljóst að Breiðablik missir af honum.
Aron Jóhannsson verður áfram leikmaður Vals næstu þrjú tímabil og því ljóst að Breiðablik missir af honum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron í leik með Val í Mjólkurbikarnum í fyrrasumar.
Aron í leik með Val í Mjólkurbikarnum í fyrrasumar.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Nú hefur það verið staðfest að Aron Jóhannsson verður áfram leikmaður Vals næstu árin því hann hefur gert nýjan samning við félagið sem gildir til tveggja ára til viðbótar, út tímabilið 2026.

Valur hafnaði á dögunum tilboði Breiðabliks í Aron sem er er 33 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem verður samningslaus eftir komandi tímabil. Önnur félög hefðu því byrja ræða við hann um samning fyrir næsta tímabil eftir um tvo mánuði en nú er ljóst að það verður ekki.

Tilkynningu Vals má sjá hér að neðan en í henni segist Aron framlengja við Val því það sé heillandi félag og spennandi tímar séu framundan.

Tilkynning Vals
Knattspyrnufélagið Valur og Aron Jóhannsson hafa gert með sér nýjan tveggja ára samning með möguleika á framlengingu um eitt ár. Aron sem er fæddur árið 1990 verður því leikmaður Vals næstu tvö tímabil hið minnsta en hann hefur verið einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar frá því hann gekk til liðs við Val fyrir leiktíðina 2022.

Aron hefur leikið í mörgum af bestu deildum Evrópu auk þess sem hann á 10 leiki fyrir U21 landslið Íslands og 19 leiki fyrir Bandaríska landsliðið.

„Ástæða þess að ég er að framlengja samning minn er einfaldlega sú að Valur er mjög heillandi félag og mér hefur liðið afskaplega vel á Hlíðarenda frá því að ég kom heim. Það eru líka spennandi tímar fram undan þar sem ég tel okkur vera með frábæran hóp. Frá því að ég kom heim hefur okkur ekki tekist að vinna alvöru titla og ég sé stórt tækifæri til þess að gera það með þessum mannskap,“ segir Aron Jóhannsson.

Lykilmaður innan sem utan vallar
Aron segist gríðarlega spenntur fyrir komandi tímabili og hefur, líkt og allt liðið, verið að æfa vel í vetur og fram undan er æfingaferð til Spánar.

„Fyrir mig persónulega þá mun ég bara halda áfram að byggja ofan á það sem við höfum verið að gera. Á síðasta tímabili spilaði ég aðeins neðar en ég er vanur að gera en var samt að skila mörkum og stoðsendingum. Ég ætla að bæta ofan á það og við ætlum að enda einu sæti ofar en á síðasta tímabili.“

Arnar Grétarsson þjálfari Vals er ánægður með að félagið hafi ákveðið að framlengja við Aron sem hann segir lykilmann í Valsliðinu.

„Þetta eru mikil gleði tíðindi fyrir okkur Valsmenn. Aron er lykilmaður innan sem utan vallar og það er frábært að hann hafi ákveðið að taka slaginn áfram á Hlíðarenda. Áfram hærra,“ segir Arnar Grétarsson þjálfari Vals.

Athugasemdir
banner
banner
banner