Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fös 22. mars 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frá ÍBV í botnlið pólsku C-deildarinnar (Staðfest)
Lengjudeildin
Valencic reið ekki feitum hesti í Vestmannaeyjum.
Valencic reið ekki feitum hesti í Vestmannaeyjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Filip Valencic hefur yfirgefið herbúðir ÍBV og er hann búinn að semja við Olimpia Grudziadz í C-deild í Póllandi. Liðið er sem stendur á botninum í deildinni.

Valencic er 32 ára gamall Slóveni, skapandi miðjumaður sem fenginn var til Vestmannaeyja fyrir síðasta tímabil til að fylla í skarð Telmo Castanheira.

Valencic var gagnrýndur fyrir vinnuframlag sitt og átti ekki góðan tíma hjá ÍBV.

Hann kom alls við sögu í tíu leikjum í deild og bikar með ÍBV, án þess að skora mark.

ÍBV féll úr Bestu deildinni síðasta sumar og spilar í Lengjudeildinni þetta árið.
Athugasemdir
banner
banner