Arturo Vidal, leikmaður Barcelona á Spáni, segist ánægður hjá félaginu og er ekki að hugsa sér til hreyfings.
Sílemaðurinn hefur verið orðaður við Inter síðustu mánuði og hafa þar endurfundir með Antonio Conte verið sérstaklega nefndir en Conte þjálfaði hann hjá Juventus.
Vidal hefur lítið tjáð sig um þessa orðróma en hann staðfestir þó að hann sé ánægður hjá Barcelona. Hann er samningsbundinn til 2021 en ekki er samt sem áður útilokað að hann gæti farið til Inter í skiptum fyrir Lautaro Martinez sem Barcelona hefur mikinn áhuga á.
„Ég er mjög ánægður og mér líður vel í Barcelona. Ég vil vera áfram og nú er ég undirbúnari en áður," sagði Vidal.
„Ég er ánægður og þetta er góður hópur og ég á marga góða vini í klefanum," sagði hann ennfremur á Instagram.
Athugasemdir