22.06.10 - 20:22
Magnús Már Einarsson
Róbert Jóhann Haraldsson tekur við KS/Leiftri (Staðfest)

Róbert Jóhann Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Róbert Jóhann Haraldsson hefur verið ráðinn þjálfari KS/Leifturs en hann gerði samning við félagið út tímabilið.
Róbert, sem lék á árum áður með KS, tekur við liðinu af Ragnari Haukssyni sem hætti í síðustu viku. Ragnar var spilandi þjálfari hjá KS/Leiftri en Róbert vonast til að hann haldi áfram að leika með liðinu.
Sjálfur þjálfaði Róbert lið Tindastóls 2007 og 2008 og þar á undan lið Hvatar en hann hefur verið í fríi frá þjálfun síðan þá.
,,Ég er búinn að hvíla mig í eitt og hálft ár og með nýjum manni koma nýjar áherslur,\" sagði Róbert við Fótbolta.net í dag.
,,Þetta eru ungir strákar og heimamenn, það er stefna félagsins að vinna þetta á ungu mönnunum. Ég hef lítið séð þá spila en það er ágætt líka að hafa verið aðskildur þessu í smá tíma.\"
KS/Leiftur er í sjöunda sætinu í annarri deild karla en liðið er með sjö stig eftir sex umferðir. Næsti leikur liðsins og fyrsti leikurinn undir stjórn Róberts er gegn Reyni Sandgerði á laugadaginn.