22.07.10 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð
Sara Ómarsdóttir í Þór/KA (Staðfest)

Dragan Stojanovic þjálfari Þór/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dragan Stojanovic þjálfari Þór/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Sara Ómarsdóttir gekk í dag til liðs við Þór/KA en Berglind Magnúsdóttir aðalmarkvörður liðsins meiddist í leiknum gegn Grindavík á dögunum og óljóst hvenær hún er klár í slaginn að nýju.
,,Sara er mjög stór og góður markvörður,\" sagði Dragan Stojanovic þjálfari Þór/KA í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Auðvitað eigum við tvo markmenn og það er alltaf gott að hafa samkeppni, sérstaklega því Berglind er í meiðslum og það er alltaf gott að hafa fleiri möguleika,\" hélt hann áfram.
Berglind varð að fara af velli í leiknum gegn Grindavík og missti svo af leiknum gegn Breiðablik í fyrrakvöld vegna meiðslanna. Þór/KA á svo mikilvægan leik gegn Val í undanúrslitum VISA-bikarsins á laugardag.
,,Hún er ekki brotin en mikið bólgin í andliti. Ég vona að hún verði með gegn val en hún var ekki á æfingu í gærkvöldi.\"
,,Við vitum meira í dag þegar hún mætir á æfingu. Það er vonlaust að segja um svona meiðsli, við vitum ekki hvað hún verður lengi frá.\"
Sara Ómarsdóttir lék áður í nokkur ár með Grindavík bæði í efstu deild og næst efstu.