Fotbolti.net
22.07.10 - 16:54
Hannes Daði Haraldsson

Alcaraz til Wigan (Staðfest)

Alcaraz til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur staðfest að búið er að ganga frá samningum við varnarmanninn Antolin Alcaraz.
Alcaraz spilaði með Paragvæ á HM í Suður Afriku og stóð sig með prýði. Hann kemur frítt þar sem samningur hans við belgíska liðið Club Brugge var útrunninn.

Alcaraz er 27 ára og skrifaði hann undir þriggja ára samning við Wigan.

,,Ég er mjög ánægður að geta loksins staðfest að við höfum skrifað undir samning við varnarmann sem var að mínu mati einn sá besti á HM í sumar,\" sagði Roberto Martinez, þjálfari Wigan

Heimild: Teamtalk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.