Fotbolti.net
22.09.11 - 10:37
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Ranieri fjórði þjálfari Inter á einu ári (Staðfest)

Claudio Ranieri er tekinn við Inter.

Claudio Ranieri er tekinn við Inter.

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 59 ára Claudio Ranieri hefur skrifað undir samning við Inter og er fjórði þjálfari liðsins á innan við einu ári. Gian Piero Gasperini var látinn taka pokann sinn í gær.
Samningur Ranieri er til 30. júní 2013. Áður en Gasperini var rekinn voru komnar sögur um það að Ranieri væri líklegur til að taka við liðinu.

Þessi fyrrum stjóri Roma mun stýra sinni fyrstu æfingu síðdegis í dag en æfingin er opin fjölmiðlum. Hann mun síðan sitja fyrir svörum á blaðamannafundi á morgun.

Ranieri er með mikla reynslu úr ítölsku A-deildinni og Meistaradeildinni og er með það orðspor að vera góður að snúa gengi liðs við í erfiðri stöðu. Hann hélt Parma í deildinni 2007 og kom Juventus í þriðja sætið á fyrsta tímabili í deildinni.

Fyrsti leikur Inter undir stjórn Ranieri verður á laugardagskvöld gegn Bologna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.