Fotbolti.net
22.09.19 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

De Jong sá eini sem fór til stuðningsmanna

De Jong sá eini sem fór til stuðningsmanna
Canon

Mynd: Getty Images

Frenkie de Jong og félagar í Barcelona töpuðu 2-0 gegn Granada í La Liga í gær.
Tapið kemur á slæmum tíma fyrir Börsunga sem eru aðeins með sjö stig eftir fimm fyrstu umferðirnar.

Eftir leikinn strunsuðu leikmenn Barca rakleitt í búningsklefann, eða allir nema De Jong. Hann fór til þeirra stuðningsmanna sem höfðu fylgt liðinu og afsakaði sig.

Eftir leik var hann einnig eini leikmaður Börsunga sem talaði við fjölmiðla.

„Ábyrgðin liggur hjá okkur leikmönnum. Við erum þeir sem eigum að þetta á okkur," sagði hann meðal annars að leikslokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.