22.10.10 - 12:40
Magnús Már Einarsson
Herold Goulon til Blackburn (Staðfest)

Sam Allardyce stjóri Blackburn.

Mynd: Getty Images

Sam Allardyce stjóri Blackburn.

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur gert tveggja ára samning við franska miðjumanninn Herold Goulon.
Þessi 22 ára gamli leikmaður kemur frítt til félagsins eftir að hafa yfirgefið Le Mans í sumar.
Þessi 22 ára gamli leikmaður kemur frítt til félagsins eftir að hafa yfirgefið Le Mans í sumar.
Gouloun hefur verið á reynslu hjá Blackburn síðan í september og nú hefur Sam Allardyce ákveðið að semja við hann.
Goulon hefur reynslu af enska boltanum en hann lék með unglingaliðum Middlesbrough á sínum tíma.
Goulon hefur reynslu af enska boltanum en hann lék með unglingaliðum Middlesbrough á sínum tíma.
Heimild: Sporting Life
