Fotbolti.net
22.10.10 - 11:42
Magnús Már Einarsson

Wayne Rooney verður áfram hjá Manchester United (Staðfest)!

Wayne Rooney verður áfram hjá Manchester United (Staðfest)!
Canon

Mynd: Getty Images

Wayne Rooney mun vera áfram í herbúðum Manchester United en hann hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið sem gildir til ársins 2015.
Rooney sagðist fyrr í vikunni vilja yfirgefa Manchester United og eftir ótrúlega atburðarás undanfarna daga er ljóst að hann verður áfram á Old Trafford.

Roonet hefur verið orðaður við mörg félög eftir að hann lýsti yfir áhuga á að fara en nú er ljóst að hann verður áfram á Old Trafford.

,,Ég er ánægður með að skrifa undir nýjan samning hjá United,\" sagði Rooney.

,,Undanfarna daga hef ég rætt við stjórann og eigendurna og þeir sannfærðu mig um að þetta er staðurinn sem ég á heima á. Ég sagði á miðvikudag að stjórinn er snillingur og trú hans og stuðningur sannfærðu mig um að vera áfram.\"

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er einnig ánægður með að Rooney verði áfram hjá félaginu.

,,Þetta hefur verið erfið vika en þessi mikla umfjöllun er eitthvað sem við bjuggumst við hjá Manchester United,\" sagði Ferguson.

,,Ég sagði stráknum að dyrnar væru alltaf opnar og ég er ánægður með að Wayne hefur ákveðið að vera áfram.\"

,,Stundum, þegar þú ert hjá félagi, er erfitt að átta sig á hversu stórt það er og þá þarf stundum eitthvað eins og atburðarás síðustu daga til að þú áttir þig á því. Ég held að Wayne skilji núna hversu frábært félag Manchester United er.\"

,,Ég er ánægður með að hann hefur tekið þeirri áskorun að leiðbeina yngri leikmönnum og festa sig í sessi sem einn af bestu leikmönnum United. Það sýnir karakter og trú á því sem við stöndum fyrir. Ég er viss um að allir hjá féalginu munu standa við bakið á Wayne og sýna honum stuðninginn sem hann þarf til að ná að sýna sitt besta.\"

Heimild: Heimasíða Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.